Reiknilíkan byggingarkostnaðar
Staðlaðar kostnaðaráætlanir fyrir fjórar algengar tegundir af íbúðarhúsnæði
Með því að slá inn tölur fyrir áætlaða brúttóstærð húss í fermetrum og velja tegund húsnæðis, í reiknimódelið hér að neðan má fá upplýsingar um byggingarkostnað fullbúins húsnæðis með sléttaðri lóð. Tölurnar byggja á nýjustu tölum úr Byggingarlykli Hannarrs hverju sinni.
Þar sem húsnæði getur verið nokkuð mismunandi að gerð og gæðum verður að túlka niðurstöðurnar sem viðmiðunarverð eingöngu. Í útreikningi á “Fjölbýlishúsi 4-5 hæðir úr steinsteypu” er miðað við kostnaðarverð alls hússins, en ekki ekki einstakra íbúða. Frágangur lóðar er innifalinn í útreikningi þess húss. Lóðagjöld miðast við algeng gatnagerðagjöld í úthverfi í Reykjavík.
Hér getur þú pantað sundurliðaða staðlaða kostnaðaráætlun fyrir 22 gerðir af húsum: Pöntunarform
BYGG-Kerfið býður upp á fullkomnar áætlanir bæði staðlaðar og séraðlagaðar af notandanum
Hér má sjá dæmi úr BYGG-kerfinu fyrir 2. hæða einbýlishús án lagna, þar sem lagnirnar hafa verið reiknaðar í aðskilinni kostnaðaráætlun
Staðlaðar áætlanir
Eins og fram kemur hér fyrir ofan er hægt að velja úr 22 tegundum staðlaðra kostnaðaráætlana.
Hægt er að láta nota þær þannig eða aðlaga þær eftir sínu höfði með því að bæta inn liðum, eyða eða breyta magni og verði.
Öll verð eru sjálfkrafa fengin úr verðskrá Hannarrs en þeim er líka hægt að breyta í áætluninni.
Hafa Samband
Nafn
Heimilisfang
Símanúmer
533-3900
Netfang
hannarr@hannarr.com